Við skákborðið copertina

Við skákborðið

Við skákborðið

Di: Útvarp Saga
Ascolta gratuitamente

Offerte di stagione | 0,99 €/mese per i primi 3 mesi

A seguire 9,99 €/mese – si applicano condizioni. Puoi disdire mensilmente.
A proposito di questo titolo
Vikulegir þættir um skák á innlendum og erlendum vettvangi í umsjón Kristjáns Arnar Elíassonar alþjóðlegs skákdómara.© 2026 Útvarp Saga
  • Kristján Örn Elíasson & Helgi Áss Grétarsson
    Nov 11 2026

    Kristján Örn Elíasson ræðir við Helga Áss Grétarsson, varaborgarfulltrúa Miðflokksins, stórmeistar sem er nýkominn til landsins eftir keppni erlendis. Fjölda skákfrétta og fleira. -- 11. nóv. 2025

    Mostra di più Mostra meno
    58 min
  • Skáksögur og Birnukaffi – Ólafur S. Ásgrímsson og Jon Olav Fivelstad
    Oct 28 2026

    Skemmtilegar skáksögur, dómaralíf og félagsskapurinn í Taflfélagi Reykjavíkur eru í fyrirrúmi þegar Kristján Örn Elíasson tekur á móti Ólafi S. Ásgrímssyni, fyrrverandi bankamanni, og Jon Olav Fivelstad, tölvunarfræðingi. Þeir eru báðir alþjóðlegir skákdómarar og hafa um árabil tekið þátt í íslensku skáklífi.

    Ólafur rifjar upp eftirminnileg skákmót, kynni af stórmeisturum og tímana þegar skákir fóru í bið og greiningar héldu áfram langt fram á nótt. Meðal annars kemur við sögu óvenjustutt leigubílsferð á Húsavík og biðskák sem reyndi á þolinmæði fréttamanns. Einnig er rætt um skákklukkur, viðbótartíma og álagið sem fylgir þéttri mótadagskrá.

    Birnukaffi fær sinn sess í samtalinu, en Birna Halldórsdóttir, eiginkona Ólafs, sá þar um vinsælar veitingar í húsnæði TR um árabil. Þeir félagar minnast vafflanna, tertnanna og hlýjunnar sem beið manna yfir kaffibolla, jafnvel eftir sárt tap.

    Jon Olav segir frá upphafi skákáhugans í Noregi og dómgæslu á Evrópumóti heyrnarskertra í Stavanger, þar sem samskipti, túlkun og aðlögun að þörfum keppenda voru mikilvægur hluti starfsins. Þá er rætt um minningarmót Friðriks Ólafssonar og undir lokin vikið stuttlega að raforkuverði og lánamálum í Noregi og á Íslandi.


    Umsjón: Kristján Örn Elíasson, alþjóðlegur skákdómari.

    Mostra di più Mostra meno
    54 min
  • Sveinbjörn Jónsson - skákmaður, hagyrðingur og trillukarl úr Súgandafirði
    Oct 21 2026

    Það er fleira á borðinu en taflmenn þegar Sveinbjörn Jónsson sest niður með Kristjáni Erni Elíassyni. Sveinbjörn er Súgfirðingur, skákáhugamaður og hagyrðingur, fyrrverandi kennari og trillukarl sem hefur komið víða við. Í léttu og líflegu spjalli fléttast saman skák og vestfirskt mannlíf, kennsla, sjómennska og sköpunargleði. Rifjaðar eru upp minningar og rætt um áhugamálin sem fylgja manni í gegnum lífið. Tónlist fær líka sinn sess þegar lögin „Það er nú það“ og „Stefjahreimur“ hljóma í þættinum.

    Mostra di più Mostra meno
    53 min
adbl_web_anon_alc_button_suppression_t1
Ancora nessuna recensione