Episodi

  • Líf kvenna á 18. öld - Rannsóknir, heimildir og miðlun
    Sep 28 2026

    Ragnhildur Anna Kjartansdóttir sagnfræðingur og skjalavörður á Þjóðskjalasafni Íslands ræðir við Guðnýju Hallgrímsdóttur sagnfræðing.

    Guðný hefur um langt skeið stundað rannsóknir á lífi kvenna á 18. öld og í þættinum ræðir hún meðal annars um það hvernig áhugi hennar á viðfangsefninu kviknaði, rannsóknavinnuna og þær heimildir sem varpa ljósi á stöðu kvenna á þessum tíma.

    Í þættinum er meðal annars fjallað um þær áskoranir sem fylgja því að vinna úr þeim takmörkuðu heimildum sem konur á þessum tíma skildu eftir sig, hvað skjölin geta sagt okkur um daglegt líf þeirra, stöðu og samfélagslegt hlutverk.

    Mostra di più Mostra meno
    53 min
  • Dularfullt andlát við Draugatjörn
    Aug 27 2026

    Símon Sverrisson ræðir við Ólaf Valdimar Ómarsson skjalavörð á Þjóðskjalasafni Íslands um dularfullt andlát Kristmanns Jónssonar árið 1881.

    Kristmann Jónsson, gullsmiður, fannst látinn við Draugatjörn árið 1881. Hann hafði verið í skemmtiferð á Hellisheiði í byrjun ágústmánaðar. Misvísandi framburður samferðafólks hans og sönnunargögn sem fuku út í veður og vind gera málið allt hið undarlegasta. Hvað gerðist við Draugatjörn — og hvers vegna var aldrei hægt að komast að endanlegri niðurstöðu?

    Hér má lesa umfjöllun Ólafs Valdimars Ómarssonar frá því í október 2023

    Hér má skoða stafræna endurgerð af rannsóknarbók Jóns landsritara

    Mostra di più Mostra meno
    26 min
  • Berklar á Íslandi
    Jul 8 2026

    Helgi Biering ræðir við dr. Erlu Dóris Halldórsdóttur um bók hennar Berklar á Íslandi.

    Berklaveiki var mikið mein í íslensku samfélagi og var dánartíðni berklasjúklinga hér á landi meðal þeirra hæstu í Evrópu. Veikin lagðist einkum þungt á ungt fólk og voru ungar konur í meirihluta þeirra sem létust af völdum hennar.

    Í þættinum er farið yfir sögu berkla á Íslandi, afleiðingar veikinnar og baráttuna gegn þessum ömurlega sjúkdómi.

    Mostra di più Mostra meno
    54 min
  • Vorráðstefnur Þjóðskjalasafns Íslands
    Jun 26 2026

    Árleg vorráðstefna Þjóðskjalasafns Íslands fór fram 3. júní síðastliðinn og var það í áttunda sinn sem ráðstefnan var haldin.

    Í þættinum ræða Heiðar Lind Hansson, fagstjóri gagnaskila og eftirlits og Njörður Sigurðsson, aðstoðarþjóðskjalavörður, um tilurð ráðstefnunnar, þróun hennar og fyrri ráðstefnur.

    Þemu vorráðstefnanna hafa verið fjölbreytt og endurspeglað þau mál sem hafa verið efst á baugi í stjórnsýslunni hverju sinni, meðal annars persónuvernd, stafræna umbreytingu og upplýsingaöryggi. Þá er einnig fjallað um þær áskoranir sem komið hafa upp við framkvæmd ráðstefnanna, ekki síst á tímum heimsfaraldurs.

    Mostra di più Mostra meno
    20 min
  • Nýr gagnagrunnur um alþingiskosningar 1874-1903
    May 6 2026

    Unnar Ingvarsson fagstjóri ræðir við Hrafnkel Lárusson sagnfræðing um nýjan vefgagnagrunn um alþingiskosningar á árunum 1874–1903, sem opnaður var þann 1. maí á vef Þjóðskjalasafns Íslands. Þar má finna upplýsingar sem varpa ljósi á kosningar, frambjóðendur og stjórnmálaþróun á fyrstu áratugum íslensks lýðræðis.

    Í þættinum er fjallað um tilurð gagnagrunnsins, hvaða heimildir liggja honum að baki og hvernig hann getur nýst bæði fræðafólki og almenningi sem vill kynna sér sögu íslenskra kosninga.

    Mostra di più Mostra meno
    36 min
  • Strand spítalaskipsins Sankti Páls á Meðallandsfjörum árið 1899
    Mar 30 2026

    Í þessum þætti ræðir Símon Sverrisson við Jóhönnu Þ. Guðmundsdóttur sagnfræðing og verkefnastjóra heimildaútgáfu á Þjóðskjalasafni Íslands um strand franska spítalaskipsins Sankti Páls.

    Sankti Páll var með glæsilegri skipum sem komu á Íslandsmið en það var þrímastra seglskip sem strandaði í sinni þriðju ferð til Íslands árið 1899.

    Hið fagra skip vakti eðlilega mikla athygli þar sem það lá í fjörunni í Meðallandi sem kölluð hefur verið skipakirkjugarður Evrópu. Jóhanna segir frá strandinu, björgun áhafnar og verðmæta, og uppboði strandgóssins sem var óvenju mikið.

    Mostra di più Mostra meno
    32 min
  • Draugaskipið Jamestown
    Feb 24 2026

    Símon Sverrisson ræðir við Helga Biering þjóðfræðing og skjalavörð á Þjóðskjalasafni Íslands um rannsóknir hans á strandi Jamestown árið 1881.

    Þann 26. júní árið 1881 strandaði seglskipið Jamestown við Hvalsnes á Reykjanesi. Skipið sem var á leið frá Bandaríkjunum til Liverpool á Englandi var fullt af timbri af mismuanndi tegundum svo sem harðvið. Ólukka virtist fylgja skipinu en úti á rúmsjó datt stýri skipsins af og endaði ferð skipsins eins og áður segir með strandi við Hvalsnes. En hvaða áhrif hafði strandið á byggð í kring og hvað varð um farminn?

    Í viðtalinu svarar Helgi þeim spurningum ásamt því að segja frá björgunaragerðum, uppboði á munum úr skipinu og þeim sögum sem voru í kringum ballest skipsins.

    Mostra di più Mostra meno
    29 min
  • Vald hinna veiku
    Jan 28 2026

    Unnar Ingvarsson fagstjóri á Þjóðskjalasafni ræðir við Guðna Th. Jóhannesson, prófessor í sagnfræði og fyrrverandi forseta Íslands, um rannsóknir hans á þorskastríðunum og væntanlega bók hans, Vald hinna veiku.

    Útfærsla efnahagslögsögu Íslands á 20. öld leiddu iðulega til átaka við Breta, sem mótmæltu þeim áformum harðlega. Deilurnar náðu hámarki þegar kom til átaka á fiskimiðunum sjálfum, þar sem togvíraklippurnar voru notaðar í fyrsta sinn.

    Í viðtalinu fjallar Guðni meðal annars um innanlandspólitíkina á þessum umbrotatímum, átökin við Breta á miðunum og hönnun og notkun hinna leynilegu togvíraklippa sem komu breskum stjórnvöldum í opna skjöldu. Hann dregur jafnframt fram aukna áherslu á rétt strandríkja til að ráða yfir miðum sínum og hvernig samningar reyndust að lokum lykillinn að lausn deilunnar.

    Mostra di più Mostra meno
    49 min