PJ Masks - Catboy bjargar afmæliskökunni
Impossibile aggiungere al carrello
Rimozione dalla Lista desideri non riuscita.
Non è stato possibile aggiungere il titolo alla Libreria
Non è stato possibile seguire il Podcast
Esecuzione del comando Non seguire più non riuscita
Ascolta ora a 0,99 €/mese per 3 mesi con il tuo abbonamento Audible.
Acquista ora a 1,95 €
-
Letto da:
-
Árni Beinteinn Árnason
A proposito di questo titolo
Á morgun á Greg afmæli! Hann hefur skipulagt eðluveislu með köku og blöðrum. Allt í einu er kakan horfin! Það lítur út fyrir að einhver hafi stolið henni! Greg breytist í Gekko og tekur Owlette og Catboy með sér til að finna þjófinn. Mun þeim takast að bjarga deginum? Komdu með Catboy, Gekko og Owlette í ofurhetjuævintýri! Sigldu inn í nóttina í kattarbílnum, ugluflauginni eða gekkóbílnum til þess að koma í veg fyrir að Romeo, Luna Girl, Night Ninja, Úlfakrakkarnir og öll hin illmennin taki yfir borgina. Háttatíminn er rétti tíminn til þess að berjast gegn glæpum. Klæddu þig í náttfötin og farðu út í nóttina til þess að bjarga deginum, PJ Masks sýna þér hvernig. Það er kominn tími til þess að vera hetja!
PJ Masks var upprunalega sería í franskri myndabók. Serían öðlaðist vinsældir á heimsvísu þegar hún var sýnd í sjónvarpi árið 2015. Í hinum vinsælu Netflix og Disney seríum, fylgjumst við með Amaya, Connor og Greg sem eiga öll töfra náttföt sem geta breytt þeim í ofurhetjur á nóttinni. Amaya verður Owlette, Connor verður Catboy og Greg verður Gekko. Þegar nóttin skellur á, taka þau sig saman til þess að berjast á móti óvinum sínum Romeo, Luna Girl, Night Ninja, Úlfakrökkunum, Motsuki, Octobella, Pharaoh Boy og Munku-Gu til þess að bjarga borginni. PJ Masks geta gert allt með ofurkröftum sínum, ofurkattarendum, ofuruglufjöðrum og ofurgekkóskildum, en að lokum er öflugasta vopn þeirra alltaf vináttan og samvinnan. Serían hjálpar börnum að sigrast á næturkvíða og kennir gildi þess að vera góð manneskja.
PJ Masks™ og tilheyrandi vörumerki eru í eigu eOne/Hasbro og eru notuð með leyfi Hasbro. © 2021 Hasbro.
©2021 Saga Kids (P)2021 Saga Kids